Rangárþing eystra auglýsir eftir áhugasömum aðilum til að halda utan um Kjötsúpuhátíðina 2022 sem haldin verður 26. - 28. ágúst nk.

Auglýst er eftir áhugasömum einstakling eða litlum hóp til að starfa sem viðburðarstjórnendur fyrir hátíðina. Starfið gengur út á það að sjá um allan undirbúning og skipulagningu, m.a. dagskrárgerð, gerð kynningarefnis og viðburðarstjórnun á hátíðinni sjálfri.

Umsækjendur þurfa að vera með góðan drifkraft og eiga auðvelt með að vinna sjálfstætt sem og með öðrum. Reynsla af viðburðarstjórnun er æskileg. Með umsókninni þurfa að fylgja hugmyndir að dagskrá fyrir hátíðna og drög að kostnaðaráætlun.

Viðburðarstjóri fyrir Kjötsúpuhátíð vinnur náið með Markaðs- og kynningarfulltrúa og Menningarnefnd Rangárþings eystra.

Umsóknarfrestur er til 19. júní nk.

Senda skal umsóknir á netfangið arnylara@hvolsvollur