Þann 14. júní s.l. var aðstandendadagur á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Kirkjuhvoli á Hvolsvelli. Dagurinn var sérstaklega hátíðlegur en Kirkjuhvoll fagnar 30 ára starfsafmæli í ár og í tilefni þess var dagurinn með afmælisívafi. Gestum og íbúum Kirkjuhvols var m.a. boðið upp á kaffi og tertur og falleg tónlistaratriði frá Tónlistarskóla Rangæinga. Einn af hápunktum dagsins var að minnast Markúsar Runólfssonar frá Langagerði en hann var mikill brautryðjandi þegar hann lagði grunn að heimilinu og rak það fyrstu árin. Í tilefni af 30 ára afmælinu var minningarsteinn um Markús afhjúpaður en á honum stendur „Markús Runólfsson Langagerði – Aðalhvatamaður og rekstrarstjóri Kirkjuhvols frá 1985-1998 – F 25.6. 1928 D 9.3. 2002“. Fjölmargir tóku þátt í þessum skemmtilega degi sem tókst einstaklega vel.