Í dag tók Kirkjuhvoll formlega við höfðinglegri gjöf frá Kvenfélaginu Bergþóru í Vestur-Landeyjum og Minningasjóð Kirkjuhvols.

Gjöfin er Nustep T5XR fjölþjálfi með fylgihlutum

Kvenfélagið Bergþóra gefur þessa gjöf í minningu um fyrrum formann kvenfélagsins, Hildi Ágústsdóttir frá Klauf, sem þakklætisvott fyrir vel unnin störf. Hildur lést 28. júní s.l. og hafði þá dvalið á Kirkjuhvoli í rúm 6 ár.

Það er von kvenfélagskvenna að gjöf þessi eigi eftir að nýtast heimilisfólki vel til að viðhalda og auka hreyfigetu sína og stuðla þannig að bættum lífsgæðum.

Kirkjuhvoll þakkar kærlega fyrir þessa höfðinglegu gjöf og þess má geta að gjöfin kom í hús á afmælisdegi Hildar þann 13 október s.l. en þann dag hefði hún orðið 85 ára.

Minningarkort Kirkjuhvols er hægt að nálgast á Kirkjuhvoli – nánari upplýsingar í síma 487-8108.

Meðfylgjadi mynd er af tækinu ásamt Karin Jónsdóttir, íbúa Kirkjuhvols.

Forsíðumyndin er af Ólöfu Guðbjörgu, hjúkrunarforstjóra, taka við gjöfinni frá stjórn kvenfélagsins Bergþóru, Lovísa Herborg Ragnarsdóttir formaður, Rúnar Smári Rúnarsson (sonur Hildar), Gunnhildur Þórunn Jónsdóttir ritari og Jóhanna Elín Gunnlaugsdóttir gjaldkera.