Nú er skólastarf hafið á nýju skólaári og fullt af ungum íþróttaiðkendum að hefja sitt fyrsta skólaár. Það er vissulega stórt skref að byrja í skóla og af þeim tímamótum ákváðu KFR og BúAðföng að gefa öllum börnum í 1.bekk í Rangárvallarsýslu, stuttbuxur og vatnsbrúsa. Þau voru glöð í bragði krakkarnir sem tóku við gjöfunum í Hvolsskóla í morgun, hæst ánægð með lífið. Nú ættu allir að geta spriklað í leikfimi og öðrum íþróttum og fengið sér vatnssopa á eftir.