Á námskeiðinu er farið yfir Evrópumálin á aðgengilegan og áhugaverðan hátt út frá sjónarhóli Íslands. Það hentar öllum sem hafa áhuga á Evrópumálum og engrar sérþekkingar er krafist.

Á námskeiðinu er farið yfir sögu ESB, stofnanir þess og uppbyggingu, og hvernig ákvarðanir eru teknar innan sambandsins. Þá verður fjallað um umsókn Íslands og aðildarviðræðurnar sem nú standa yfir og hvaða afleiðingar möguleg aðild Íslands að ESB geti haft fyrir Ísland. Loks er skoðað hvernig ESB hefur brugðist við fjármálakreppunni og hvaða áskoranir eru framundan fyrir framtíð Evrópusamvinnu.

Að námskeiði loknu ættu þátttakendur að vera vel kunnugir grundvallarhugtökum í umræðunni um Evrópumál og vera betur í stakk búnir til að taka þátt í umræðunni á gagnrýninn og upplýstan hátt.

Kennari námskeiðsins er Auðbjörg Ólafsdóttir, stjórnmála- og hagfræðingur
Dagar: Miðvikudagur 27. febrúar kl 19-22
Skráningargjald: 1000

Skráning fer fram hér

Boðið verður upp á námskeiðið í fjarfundi á Hvolsvelli