Áætlað er að um 546.000 ferðamenn hafi komið í Rangárþing eystra árið 2012. Sveitarfélagið fékk Rögnvald Guðmundsson hjá Rannsóknir og ráðgjöf ferðaþjónustunnar til að taka saman tölur yfir ferðamenn í Rangárþingi eystra fyrir árið 2012 og nokkrar samanburðar tölur. Hér fyrir neðan má sjá nokkrar niðurstöður. Skýrsluna í heild er hægt að lesa hér: Ferðamenn í Rangárþingi eystra 2012.

Erlendir ferðamenn

Sumar
72% erlendra ferðamanna á Íslandi sumarið 2012 komu í Rangárþing eystra
- 234.000 erlendir ferðamenn

Utan Sumars
38% erlendra ferðamanna á Íslandi utan sumars 2012 komu í Rangárþing eystra
- 132.000 erlendir ferðamenn

Áætla má að alls hafi 366.000 erlendir ferðamenn lagt leið sína í Rangárþing eystra árið 2012


Íslendingar

60% íslenskra ferðamanna sumarið 2012 komu í Rangárþing eystra 180.000 Íslendingar. 

- Hér þarf þó að hafa í huga að þegar teknar eru saman tölur um heimsóknir Íslendinga að margir koma oftar    en einu sinni, t.d. fólk sem á sumarbústaði í sveitarfélaginu, og heildartölur geta því verið mun hærri en þessar.


Einnig voru teknar saman tölur yfir þá fjóra staði sem mest eru heimsóttir í Rangárþingi eystra, Skógafoss, Seljalandsfoss, Hvolsvöll og Þórsmörk. Skógafoss er 4. mest sótta náttúruperla Íslands og Seljalandsfoss er í 5.-7. sæti.