Íbúum í Rangárþingi eystra fjölgar og hafa aldrei verið fleiri

Þann 1. júní 2015 voru alls 1772 íbúar skráðir í Rangárþingi eystra og hafa þeir aldrei verið fleiri í sveitarfélaginu. Þetta er mjög jákvæð þróun og sýnir að sveitarfélagið er að styrkjast með tillit til aukins atvinnuframboðs allt árið. Í dag er þó nokkur fjölbreytni á atvinnuframboði til viðbótar við stærstu vinnuveitendur í sveitarfélaginu eins og Sláturfélag Suðurlands og starfsfólk sveitarfélagsins. Helsti vöxturinn er í ferðaþjónustu og þjónustustörfum tengdum greininni, auk þess er á ný nóg að gera hjá iðnaðarmönnum á svæðinu.