Hvolsskóli auglýsir eftirfarandi stöður lausar til umsóknar

Starfshlutfall er 50-100%. Um er að ræða ýmist tímabundna ráðningu fyrir næsta skólaár vegna leyfa.

Auglýst er eftir:

  • Umsjónar- og faggreinakennurum á yngsta stigi, 70-100% stöðugildi.
  • Starfsmönnum í ræstingar – 100% og 50% starfshlutfall

Hæfniskröfur:

Umsækjandi þarf að búa yfir góðri færni í mannlegum samskiptum, sýna frumkvæði og metnað fyrir starfi sínu. Hann þarf einnig að hafa gott vald á íslenskri tungu eða vera tilbúinn að læra hana, vera við góða heilsu, vera jákvæður og tilbúinn að starfa eftir þeim stefnum og gildum sem eru í Hvolsskóla.

Fylgigögn með umsókn:

Ferilskrá:

  • Upplýsingar um menntun.
  • Upplýsingar um fyrri störf.
  • Upplýsingar um meðmælendur.

 

Menntunarkröfur og starfsvið fyrir kennarastöður:

  • B.Ed. gráða eða M.Ed. og heimild til kennslu í grunnskóla
  • Umsjón með bekk/nemendahópi með þeim skyldum sem felast í því starfi.
  • Kennsla faggreina
  • Lestrarkennsla er mikilvægur þáttur.
  • Foreldrasamskipti.
  • Seta í teymum/nefndum eftir því sem við á.

Hvolsskóli er grunnskóli í Rangárþingi eystra. Þar eru um 240 nemendur í 1.-10. bekk og eru um 45% þeirra að koma með skólabíl á morgnana. Skólinn starfar undir merkjum Uppeldis til ábyrgðar, ART og er Grænfánaskóli, Heilsueflandi grunnskóli og Kötlu jarðvangs – UNESCO skóli. Frekari upplýsingar er að finna á heimsíðu skólans: www.hvolsskoli.is

Nánari upplýsingar veitir skólastjóri í síma 488-4240/865-8926 eða á netfanginu skolastjori@hvolsskoli.is

Umsóknarfrestur er til og með 4. júlí 2021 og skulu umsóknir berast á skrifstofu skólans eða á netfangið skolastjóri@hvolsskoli.is ásamt umbeðnum fylgigögnum