HÚS TIL BROTTFLUTNINGS.
Húsið er staðsett við Hvolsveg nr. 33 á Hvolsvelli og það er selt til brottflutnings og án lóðarréttinda. Tilboðsfrestur er til klukkan 12:00 þann 5. desember nk. Afstaða til tilboða verðu tekin á fundi byggðarráðs, þann 7. desember 2023. 

Húsið er byggt úr timbri árið 2016. Eignin hefur verið notauð sem leikskóladeild síðustu ár.

Það er timburklætt að utan og bárujárn á þaki. Að innan er húsið klætt með spónarplötum og málað loft er klætt með hljóðeinangrunarplötum. Á gólfum er parkett og á andyri, baðherbergi og þvottahúsi eru dúkar á gólfi. Skiptist í nokkur rými þar sem er meðal annars eldhús og baðherbergi þvottahús og tveir inngangar eru í húsið.

Allar nánari upplýsingar veitir Ágúst Kristjánsson lgf hjá Fannberg Fasteignasölu í síma 4875028 / 8938877

Húsið á fasteignavef mbl.