Hrafnkell Stefánsson á Kúfhól tók þátt á landsmóti UMFÍ 50+ sem haldið var á Húsavík dagana 20. - 22. júní sl. Hrafnkell tók þátt í kúluvarpi, en þar átti hann titil að verja frá árinu 2013, og einnig keppti hann í hástökki. Gerði hann sér lítið fyrir og sigraði í báðum þessum greinum. Sveitarfélagið óskar Hrafnkeli innilega til hamingju með þennan frábæra árangur.