Hrafnhildur Hauksdóttir er íþróttamaður ársins 2014
Hrafnhildur Hauksdóttir knattspyrnukona var valin íþróttamaður ársins 2014 í Rangárþingi eystra. Fjórir voru tilnefndir og auk Hrafnhildar voru þau María Rósa Einarsdóttir íþróttafélaginu Dímon, Andri Már Óskarsson GHR og Guðbergur Baldursson Knattspyrnufélagi Rangæinga. Valið var kynnt á 17. júní hátíðinni á Hvolsvelli. Hrafnhildur lék árið 2014, 20 knattspyrnuleiki í efstu deild og bikarkeppni KSI með meistaraflokki kvenna. Hún hefur spilað með Selfossi og fékk liði silfurverðlaun í bikarkeppni KSÍ og endaði í 4 sæti á Íslandsmótinu. Hrafnhildur lék einnig átta leiki með U-19 ára landsliði Íslands og var fyrirliði í þremur þeirra. Í umsögn um Hrafnhildi kemur fram að hún er frábær íþróttamaður og góð fyrirmynd fyrir unga sem aldna. Hrafnhildur hlaut auk eigna- og farandbikars, gjafabréf í Intersport og árskort í sund og líkamsrækt á Hvolsvelli. Það var Ólafur Örn Oddsson sem kynnti og afhenti bíkarinn. 


Á myndinni frá vinstri eru, María Rósa, Hranfnhildur, Guðbergur, Andri Már og Ólafur Örn 

Á myndinni er Hrafnihildur með foreldrum sínum, Hauki Kristjánssyni og Guðmundu Þorsteinsdóttur