Þessi frétt er tekin af visir.is

Tónleikarnir eru 30. apríl og 1. maí og miðasala er í fullum gangi á www.tix.is/hjartansmal 

Það stendur mikið til á Hellu og á Hvolsvelli á næstunni því þar á að halda tónleika, sem kallast “Hjartans mál”. Tónlistarfólkið verður allt í náttfötum og salirnir verða myrkvaðir og allt verður þakið í mottum, teppum og pullum fyrir tónleikagesti.

Æfingar standa nú yfir á fullum krafti fyrir tónleika og fjölskyldusýninguna “Hjartans mál” eftir samnefndri tólf laga plötu, sem Hólmfríður Samúelsdóttir er að gefa út en lög og textar eru allir eftir hana.

Platan kemur út á næstu vikum en á undan verða sýningarnar á Hellu og á Hvolsvelli um næstu mánaðamót. Hólmfríður segir að um ævintýrasýningar verða að ræða. Búið er að prenta sérstaka boli og mikil stemming er fyrir verkefninu.

„Þetta er ný barnafjölskylduplata, sem ég er búin að vera að vinna að í nokkur ár og hef bara fengið mitt besta fólk með mér. Við ætlum að frumflytja efnið áður en það kemur út og vinna myndefni með plötunni líka,” segir Hólmfríður og bætir við.

Hólmfríður ásamt manni sínum, Arnari Jónssyni, sem er í tónlistarhópnum með henni.MAGNÚS HLYNUR HREIÐARSSON

„Þetta verður svona hugljúf plata fyrir börn á öllum aldri eða réttara sagt hugljúf fjölskylduplata, sem gott er að hlýða á fyrir svefninn. Ég átti mjög óvær börn sjálf og notaði tónlist mikið enda hefur tónlistin verið okkar helsta verkfæri og þetta er kannski mín gjöf til allra barna, sem eiga erfitt með að sofna.

„Hún Hófí semur svo dásamlega falleg lög og það er ekki hægt annað en að syngja þau vel, þannig að ég er mjög spennt fyrir þessu öllu,” segir Rakel Pálsdóttir, sem er eina af þeim, sem syngur á nýju plötunni.

Tónleikarnir og fjölskyldusýningin „Hjartans mál” fer fram í Menningarsal Hellu þann 30. apríl kl. 15.30 og á Midgard Hvolsvelli þann 1.maí kl.17.00.