Viðurkenning fyrir sveitarlistamann Rangárþings eystra er nú afhent í 9. sinn en bæði einstaklingar og hópar hafa fengið þessa viðurkenningu síðustu ár. Listalífið blómstrar sem aldrei fyrr og íbúar geta m.a. notið listasýninga, tónleika og leiksýninga.

Sveitarlistamaður Rangárþings eystra 2023 er Hjálmar Ólafsson.

Eins og máltækið segir þá er ýmsum margt til lista lagt og það á vel við þegar að kemur að Sveitarlistamanni Rangárþings eystra árið 2023. Listamaðurinn hefur skapað hina fegurstu listmuni, miðlað þekkingu sinni til ungra og aldna og hefur unnið að uppbyggingu viðhaldi á gamalli byggingararfleið.

Hjálmar er mikill hagleiksmaður og er einstaklega listrænn þegar kemur að því að meðhöndla og skera út í tré. Hann hefur sl. ár búið til ýmsa fallega gripi, jólaskraut, bakka og fleira í þeim dúr en einnig skorið út íslensku húsdýrin sem glatt hafa börn enda ákaflega vel gerð.

Hjálmar hefur kennt smíði og útskurð hjá eldri borgurum sem njóta þekkingar hans og handleiðslu og það má sjá á sýningum á handverki eldri borgara að Hjálmar hefur leiðbeint vel. Hann hefur einnig kennt í Hvolsskóla. Hjálmar er einstakur rólyndismaður sem kemur sér líklega vel í hans listsköpun. Hjálmar vann ásamt fleirum að uppbyggingu á Gamla bænum í Múlakoti og þar hafa hæfileikar hans og nákvæmni notið sín vel.

Christiane L. Bahner, formaður Markaðs- og menningarnefndar, afhenti Hjálmari verðlaunin á Kjötsúpuhátíð. Sláturfélag Suðurlands lagði til veglega gjöf til listamannsins og kunnum við þeim þakkir fyrir það.