Safnið verður opnað á ný þann 4. maí þegar ný auglýsing um takmörkun á samkomum vegna farsóttar tekur gildi en þó verða nokkrar breytingar á þjónustu safnsins. 

Afgreiðslutími safnsins verður óbreyttur
Mánudaga 13:00-20:00
Þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga 13:00-18:00
Föstudaga 10:00-13:00

Skiladagur á öllum bókum og öðrum gögnum sem eru í útláni er 14. maí n.k.

DVD diskar eru lánaðir án endurgjalds á meðan þetta ástand varir.

Tímarit eru eingöngu til útláns, ekki er leyfilegt að skoða þau á safninu. 

Skilabækur eru settar í tveggja daga sóttkví og sótthreinsaðar áður en þær fara aftur í útlán.

Viðskiptavinir sem eru í viðkvæmri aðstöðu geta fengið bækur og önnur gögn send heim. 
Velkomið að senda okkur póst á bokrang@bokrang.is eða hringja í 488-4235.

Gestir eru beðnir um að virða þær reglur sem settar hafa verið varðandi samkomubannið og að þeir fylgi gyrirmælum.

  • Gestir hafa greiðan aðgang til handþvotta og að handspritti.
  • Gestir virða tveggja metra regluna, bæði gagnvart öðrum gestum og starfsfólki safnsins.
  • Gestir lágmarki dvalartímann á safninu.
  • Gestir takmarki snertingar á bókum og innanstokksmunum.
  • Gestir komi ekki í hópum á safnið.

Á facebook síðu safnsins má finna ýmsar upplýsingar og þar má einnig hafa samband við starfsfólk safnsins.