Vegna bilunar verður heitavatnslaust í Rangárveitum í dag á milli klukkan 14:00 og 18:00. Sjá nánar á meðfylgjandi mynd.

Fólki er bent á að hafa skrúfað fyrir alla heitavatnskrana til að draga úr hættu á slysi eða tjóni þegar vatnið kemst á að nýju. Í kuldatíð er ráðlegt að hafa glugga lokaða og útidyr ekki opnar lengur en þörf krefur til að koma í veg fyrir að það kólni.

Starfsfólk Veitna biðst velvirðingar á óþægindum vegna þessa.

Hægt er að fylgjast með fréttum Veitna hér.