Starfsmenn SS á Hvolsvelli hafa tekið á því með heilsusamlegum hætti síðan heilsuvika í Rangárþingi eytra var haldinn. Þeir tóku þátt í heisluvikunni með því að bjóða upp á heilsufarsmælingar fyrir allt starfsfólk, allur matur í mötuneytinu var settur fram með næringargildisútreikningum, til þess að fólk gæti glöggvað sig á orkunni sem það væri að innbyrða. Auk þess var farið að bjóða til sölu ávaxtaboost í kaffihléum, ferskir og þurrkaðir ávextir voru einnig  á boðstólnum.  Þetta mæltist vel fyrir hjá starfsfólki og því var brugðið á það ráð að halda áfram með boostdrykkina og ávextina í morgunkaffinu og síðdegiskaffinu. Kökusneiðarnar í síðdegiskaffinu voru minnkaðar og fleiri nýjungar eru í bígerð. Einnig er búið að stofna gönguhóp sem stendur fyrir vikulegum göngutúrum og einu sinni í mánuði á að fara í lengri göngutúra. Búið er að ganga á Hvolsfjall, Tumastaða- og Tunguskóg og  Sólheimahringinn.  Það væri gaman að sjá fleiri  fyrirtæki í Rangárþingi eystra fylgja þessu fordæmi eftir.