Sorpstöð Rangárvallasýslu auglýsir hausthreinsun


Dagana 10. október til 20. október 2014
verður hreinsunarátak í sveitum á vegum Sorpstöðvar Rangárvallasýslu.  Gámar verða á tímabilinu staðsettir á eftirtöldum stöðum, þ.e. á „gömlu“ gámastæðum þessara staða:

10. október til 20. október verða gámarnir á eftir töldum stöðum, Skógum, Heimalandi, A-Landeyjum, V-Landeyjum, Fljótshlíð, Bakkabæjum.

Sérstaklega skal taka fram að eingöngu verða þar gámar fyrir málma, timbur, grófan úrgang og kör fyrir rafgeyma.  Gámarnir eingöngu ætlaðir fyrir fasteignaeigendur á starfssvæði Sorpstöðvar Rangárvallasýslu og eru gjaldfrjálsir.

Ákaflega mikilvægt er að rétt sé flokkað í gámana.  Ef misbrestur verður á því er engin leið önnur en að fjarlægja gámana áður en hreinsunarátakinu lýkur og aðrar leiðir verður að fara í hreinsunarátaki að ári liðnu.  Vart þarf að taka fram að algerlega óheimilt er að setja úrgang utanvið gámana.

Rekstrarúrgang og annan úrgang verða íbúar og rekstraraðilar að koma með að móttökustöðinni á Strönd eða semja við þjónustuaðila um hirðingu og losun þess úrgangs.  Rúllu- og baggaplast er sótt heim til bænda skv. samkomulagi þeirra við þjónustuaðila.  Einnig er hægt að losna við plastið á gámavellinum á Strönd og á Hvolsvelli.

Eftir að hreinsunarátakinu lýkur verða allir gámar fjarlægðir og algerlega er óheimilt að afsetja úrgang á þessi svæði.

Allar nánari upplýsingar veitir Ómar Sigurðsson, starfsmaður Sorpstöðvar Rangárvallasýslu.
Sími:  487 5157
Tölvupóstur:  strond@rang.is

Sorpstöð Rangárvallasýslu bs