Í dag, föstudaginn 20. apríl, var undirritað samkomulag milli landeigendafélagsins Seljalandsfoss ehf. og  sveitarfélagsins Rangárþings eystra en þetta samkomulag er gert til að formgera og ramma inn helstu aðtriði vegna stofnunar rekstrarfélags um uppbyggingu og rekstur við Hamragarða og Seljalandsfoss.

Seljalandsfoss ehf. og sveitarfélagið hafa unnið saman að gerð þessa samkomulags í þónokkurn tíma og var stofnaður vinnuhópur til að standa að þeirri vinnu, skipaður tveim fulltrúum Seljalandsfoss ehf. og tveim fulltrúum sveitarfélagsins.

Á myndinni hér fyrir neðan má sjá, f.v. Guðmund Viðarsson og Ísólf Gylfa Pálmason, fyrir hönd Rangárþings eystra, og Kristján Ólafsson og Jón Gunnar Aðils, fyrir hönd Seljalandsfoss ehf.