Rangárþing eystra auglýsir hér með eftirfarandi lóðir í Gunnarsgerði, lausar til úthlutunar. 
Um er að ræða raðhúsalóðirnar 1a-1d, 3a-3c og 4a-4c, parhúsalóðirnar 5a-5b, 6a-6b og 7a-7b, einbýlishúsalóðirnar 8, 9 og 10. 
Umsóknareyðublað, nánari upplýsingar um lóðirnar og skipulagsskilmála má nálgast á heimasíðu Rangárþings eystra www.hvolsvollur.is og á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa, Ormsvelli 1, Hvolsvelli, bygg@hvolsvollur.is 
Við úthlutun lóðanna verður farið eftir úthlutunarreglum lóða í Rangárþingi eystra. Umsóknarfrestur er til 20. ágúst 2017. Umsóknum skal skilað á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa eða á netfangið bygg@hvolsvollur.is. 

F.h. Rangárþings eystra
Anton Kári Halldórsson
Skipulags- og byggingarfulltrúi