SÖGUSETRIÐ Á HVOLSVELLI
Miðvikudaginn 20. nóv kl. 20:00

Guðni Ágústsson kynnir bók sína Guðni –léttur í lund og segir gamansögur eins og honum einum er lagið.
 
Veitingasala. Húsið opið frá kl. 19:00.

 

Guðni Ágústsson er löngu orðinn goðsögn í lifanda lífi. Hann er annálaður sagnamaður og njóta fáirviðlíka vinsælda sem tækifærisræðumenn og hann, auk þess sem miklar sögur hafa lengi gengið umhann sjálfan.Í þessari bráðskemmtilegu bók segir Guðni með sínum kjarnyrta hætti sögur af forvitnilegu fólki semhann hefur mætt á lífsleiðinni – og sjálfum sér.

Hér stíga fram á sviðið óþekktir bændur úr Flóanum jafnt sem þjóðkunnir stjórnmálamenn af öllumstærðum og gerðum. Í bókinni eru sögur af kynlegum kvistum og vammlausum embættismönnum,skagfirskum indíána, mögnuðum draugagangi, flótta út um þakglugga, manndrápsferð til Kína,afdrifaríku fallhlífarstökki og eftirminnilegar vísur – svo eitthvað sé nefnt. Þá segja ýmsir þjóðþekktirmenn litríkar sögur af Guðna.

Guðni – Léttur í lund er sannkallaður lífsins elixír sem bætir, hressir og kætir!