Greiningarfundir á ljósmyndum í Goðalandi í Fljótshlíð annan hvern föstudag kl 10:00. Á fundunum verður lögð áhersla á að greina fólk, staði og fleira á ljósmyndum úr safni Ottó Eyfjörð sem starfaði sem ljósmyndari í Rangárvallasýslu. Fundirnir verða eftirfarandi daga:

10. september

24. september

8. október

22. október

Á fundum varpar starfsmaður skjalasafnsins ljósmyndum upp á tjald og leitar eftir aðstoð fundargesta við að greina efni myndanna. Kaffi á könnunni og allir velkomnir.

Verkefnið er styrkt af Uppbyggingarsjóði Suðurlands

Héraðsskjalasafn Árnesinga