Á morgun 8. nóvember verður grænfáninn afhentur við hátíðlega athöfn og hefst dagskráin kl. 11 við Hvolsskóla. 
Dagskráin er á þessa leið:


1. Setning hátíðarinnar: 
    - Sigurlín Sveinbjarnardóttir, skólastjóri.
2. Ávarp: 
    - Ísólfur Gylfi Pálmason, sveitarstjóri.
3. Kór Hvolsskóla.
4. Ávarp: 
    - Hreinn Óskarsson. Skógarvörður á Suðurlandi.
5. Kór Hvolsskóla.
6. Afhending Grænfánans: 
   - Gerður Magnúsdóttir, verkefnisstjóri skóla á grænni grein.
7. Grænfáni dreginn að húni: nemendur af yngsta stigi.
8. Grænmetis- og ávaxtahlaðborð.

Foreldrum velkomið að fagna með okkur.