Götusópari frá Hreinsitækni mun hefja sópun á Hvolsvelli föstudaginn 6. maí. Farið verður svo betur yfir göturnar með sópun og þvotti um helgina.

Mikilvægt er að bílum sé ekki lagt út við göturnar á þessum tíma svo hægt sé að sópa við kantsteina og biðlum við til íbúa að huga að því sem og passa að annar búnaður sé ekki fyrir götusópurunum.