Laugardaginn 22. júlí verður hjólreiðakeppnin The Rift haldin. Keppendur eru alls um 1200 og ljóst að keppnin kemur til með að hafa töluverð áhrif á bæjarlífið og alla umferð um Hvolsvöll, Fljótshlíð og nærliggjandi hálendisvegi. 

Vegna keppninarinnar verður hluti Hlíðarvegs lokaður frá kl. 18:00 föstudaginn 21. júlí til kl. 22:00 laugardaginn 22. júlí. Vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát og aka um merktar hjáleiðir. Keppnin sjálf er ræst kl. 07 á laugardagsmorguninn og er áætlað að flestir keppendur komi í mark milli kl. 13 og 17 og mun umferð hjólandi um Fljótshlíðarveg vera mest á þeim tíma. Íbúar og ferðamenn eru beðnir um að sýna sérstaka aðgát í umferðinni á laugardaginn.