Mjög vel hefur gengið að safna garðaúrgangi beint á planið á gámasvæðinu. 

Með þessari aðferð er aðgengi með kerrur betra og þægilegra að sturta úr þeim en ofan í gám. 

Einnig gengur áhaldahúsi vel að hreinsa planið og fara með garðaúrgang á rétta staði í uppfyllingar og fleira. 

Því hefur verið tekin sú ákvörðun að halda þessu fyrirkomulagi áfram.