Unnið að endurgerð elsta hluta gamla bæjarins í Múlakoti


Í sumar hefur verið unnið að endurgerð elsta hluta gamla bæjarins i Múlakoti í Fljótshlíð. Verkefnið hefur verið unnið í litlum skrefum og búið er að hlaða upp neðsta hluta hússins sem er kjallari undir elsta hluta hússins og setja í hann nýja glugga. Einnig er búið að klæða elsta hlutann og setja í hann fallega glugga sem eru eins og upprunalegu gluggarnir. 

Húsasmíðameistarinn Árni Sigurðsson frá Sámastöðum smíðaði gluggana. Húsasmíðameistararnir Hjálmar Ólafsson og Sigurður Sigurðsson voru að leggja lokahönd á að setja nýju gluggana á sinn stað. Gluggarnir eru einstaklega falleg smíði og sömuleiðis er grjóthleðslan vel heppnuð en það voru þeir Viðar Bjarnason, Þorsteinn Jónsson og Orri Guðmundsson.

Á myndinni eru þeir Sigurður og Hjálmar við nýju gluggana.