Tekin verður fyrsta skóflustungan að nýrri viðbyggingu Dvalar- og hjúkrunarheimilisins Kirkjuhvols, föstudaginn 26. ágúst kl. 15:00. 

Það verða þau Kristján Þór Júlíusson, heilbrigðisráðherra, Ólöf Guðbjörg Eggertsdóttir, hjúkrunarforstjóri á Kirkjuhvoli og Lilja Einarsdóttir, oddviti og hjúkrunarfræðingur, sem taka skóflustunguna. 


Um er að ræða viðbyggingu fyrir tólf hjúkrunarrými. Viðbyggingin verður 1.305 fm þar sem 779 fm eru fyrir hjúkrunarrými og 526 fm er fyrir þjónusturými. JÁVERK hf. á Selfossi mun sjá um bygginguna.


Rangárþing eystra fékk úthlutað 202 milljónum úr Framkvæmdasjóði aldraðra og verður þessi viðbygging kærkomin og þörf viðbót við aðstöðu dvalar- og hjúkrunarheimilisins.