Anton Kári Halldórsson, sveitarstjóri, Þóra Björg Ragnarsdóttir skipulags- og byggingarfulltrúi, Bjö…
Anton Kári Halldórsson, sveitarstjóri, Þóra Björg Ragnarsdóttir skipulags- og byggingarfulltrúi, Björn Traustason, framkvæmdastjóri Bjargs, Baldur Pálsson frá Eðalbyggingum og Þröstur Bjarnason verkefnastjóri hjá Bjargi.

Föstudaginn 18. ágúst var fyrsta skóflustungan tekinn að nýjum leiguíbúðum sem Bjarg íbúðafélag byggir.

Bjarg íbúðafélag hefur hafið byggingu á fjórum íbúðum í raðhúsi við Hallgerðartún 69-75 á Hvolsvelli.

Íbúðirnar verða 4ra herbergja í raðhúsi á einni hæð og eru þær 92,2 - 93,6 m². Um er að ræða sérbýli með litlum garði og allar íbúðir með tveimur bílastæðum.

Áætlað er að íbúðirnar verði tilbúnar í apríl 2024. Verktaki verksins er Eðalbyggingar og SG hús á Selfossi.

Bjarg íbúðafélag er húsnæðissjálfseignarstofnun stofnuð af ASÍ og BSRB. Félagið er rekið án hagnaðarmarkmiða og er ætlað að tryggja tekjulágum fjölskyldum á vinnumarkaði aðgengi að öruggu íbúðarhúsnæði í langtímaleigu. Um er að ræða svokölluð leiguheimili að norrænni fyrirmynd, ,,Almene boliger". Leiðarljós félagsins er að veita leigutökum öruggt húsnæði til langs tíma.

Það var í byrjun árs 2022 sem Bjarg íbúðafélag kom að máli við Rangárþing eystra og kynnti hugmyndir sínar um uppbyggingu leiguhúsnæðis í Rangárþingi eystra. Vel var tekið í þær hugmyndir og á 304. fundi sveitarstjórnar var ákveðið að Rangárþing eystra kæmi að verkefninu með stofnframlagi í formi láns ásamt því að úthluta lóð fyrir verkefnið.

Opnað verður fyrir umsóknir um leiguíbúðirnar í september 2023.