Söngkonan og lagasmiðurinn Hjálmfríður Þöll Friðriksdóttir, eða Fríða Friðriks eins og hún er kölluð, mun halda útgáfutónleika vegna ný útkominnar plötu sinnar "Lend me your shoulder" í Hvolnum, Hvolsvelli laugardaginn 11. júlí kl. 21. Aðgangseyrir kr 1500.- frítt fyrir 12 ára og yngri. Fríða mun einnig halda útgáfutónleika á Rósenberg, Klapparstíg í Reykjavík 14. júlí kl 21. Einnig mun hún syngja nokkur lög af plötunni 11. júlí á veitingastaðnum Eldhúsinu á Selfossi kl.13 og Smekkleysu Laugavegi 17. júlí kl 17. Hægt verður að kaupa plötuna á tónleikunum og fá hana áritaða. 
Upphitun fyrir tónleika Fríðu sér Emil Aðalsteinsson um.