Guðjón Ragnar Jónasson var í byrjun nóvember ráðinn ritstjóri Goðasteins, en leitin að nýjum ritstjóra tók lengri tíma en áformað var. Nýr Goðasteinn kemur því út í byrjun febrúar og þeir sem hafa áhuga á að gerast áskrifendur að Goðasteini hafi samband í gegnum netfangið gudjon@bifrost.is . Þeir sem gerast áskrifendur nú geta fengið eldri blöð á vildarkjörum.

Gaman er frá því að segja að Goðasteinn nýtur mikillar velvildar í héraði og mýmargir hafa léð efnisöfluninni í blaðið lið. Ekki má heldur gleyma þeim fjölmörgu fyrirtækjum sem styrkt hafa útgáfuna og ljóst má vera að Rangæingum nær og fjær er hugað um að halda útgáfu Goðasteins áfram. Í huga þeirra sem standa að útgáfunni fer því fjarri að eitthvert hausthljóð sé komið í vindinn.