Frábær mæting var á kynningarfund fyrir verkefnið Fjölþætt heilsurækt í Rangárþingi eystra sem haldinn var í Hvoli í gærkvöldi. Um 60 manns mættu og hlýddu á þau Janus Guðlaugsson, leiðbeinanda verkefnisins, Anítu Tryggvadóttur og Ingibjörgu Sæmundsdóttur, meistaranema í íþrótta- og heilsufræðum, en þær munu sjá um verkefnastjórnina.

Viðfangsefni verkefnisins er forvarnarstarf og heilsuefling á sviði líkams- og heilsuræktar eldri aldurshópa í Rangárþingi eystra. Markmiðið er að bæta afkastagetu hinna eldri, auka þol þeirra og styrk og efla hreyfifærni með markvissri þjálfun.
Sértækar íhlutanir fara fram í formi fjölþættrar þjálfunar, næringarráðgjafar og fræðslu í 12 vikur. Stefnt er að því að halda verkefninu áfram til lengri tíma að þessum tíma liðnum og stuðla þannig áfram að bættum lífsgæðum eldri aldurshópa í sveitarfélaginu.
Markmiðið er jafnframt að kanna líkamsástand þátttakenda í upphafi verkefnisins og að 12 vikna þjálfun lokinni. Helstu mælingar verða á sviði daglegrar hreyfingar, afkastagetu og hreyfifærni