Fræðslunet Suðurlands er með fjölbreytt úrval af námskeiðum á dagskrá í vetur. Í starfstöðinni á Hvolsvelli má meðal annar sækja námskeið í ensku, íslensku, skrautskrift, vefsíðugerð og veðurfræði svo fátt eitt sé nefnt. Það er mikill hagur fyrir íbúa sveitarfélagsins að geta sótt námskeið í heimabyggð eða í gegnum fjarbúnað þar sem það er í boði svo rétt er að hvetja alla að kynna sér þau námskeið sem eru í boði.

Hér má sjá lista yfir námskeið sem kennd eru á Hvolsvelli: Námskeið á Hvolsvelli

Hérna er námskeiðislisti í heild: Námsvísir Fræðslunetsins 2013