Selfoss/Suðurland 25. maí 2011 - Ferðaþjónustuaðilar á Suðurlandi eru bjartsýnir um framhaldið þrátt fyrir erfiðleika undanfarinna daga, enda hefur dregið verulega úr gosinu og merki eru um að því sé jafnvel lokið. Færð og skyggni eru að lagast og hringvegurinn milli Víkur og Freysness hefur verið opnaður. Markaðsstofa Suðurlands hvetur þá sem ætla að ferðast um Suðurland á næstu dögum og í sumar að fylgjast með fréttum næstu daga og afla sér upplýsinga áður en ferðaáætlunum er breytt.

Mikið hefur dregið úr gjóskuframleiðslu og öskufall er nú á afmörkuðu svæði. Rangárþing, Suðurströndin, Mýrdalurinn og uppsveitir Árnessýslu eru að mestu laus við ösku. Sigríður Dögg Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Ríkis Vatnajökuls, sem er ferðaþjónustu-, menningar- og matvælaklasi Suðausturlands, segir nokkurt öskufall hafa verið  í upphafi gossins en það sé nú að mestu horfið, veður sé fallegt og græni liturinn allsráðandi á túnum á ný.

Búið er að undirbúa sumarið vel og á svæðinu í kringum Klaustur hefur gistirými verið aukið mikið frá því á síðasta ári. Ferðaþjónustan býður upp á ýmsa afþreyingu og er tilbúin til að taka á móti ferðamönnum og aðstoða við ferðir og skipulagningu þeirra.

Davíð Samúelsson, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Suðurlands: "Ferðaþjónustuaðilar taka þessu með jafnaðargeði enda eru þeir vanir nábýli við náttúruna og kunna bæði að takast á við hana og njóta hennar. Nú eru þeir að búa sig undir að taka á móti ferðamannastraumnum aftur um leið og hringvegurinn opnast. Það er því  engin ástæða fyrir fólk sem ætlar að ferðast um Suðurland að afbóka, en við hvetjum fólk til að fylgjast með fréttum og afla sér upplýsinga."

Hægt er að nálgast upplýsingar um stöðuna á Suðurlandi hjá Upplýsingamiðstöð ferðamanna á Hvolsvelli í síma 487 8043.

Nánari upplýsingar: Davið Samúelsson í síma 861-3426.