Félagsþjónusta Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu auglýsir eftir starfsmanni í tímavinnu til að sinna stoðþjónustu. Starfið felst í aðstoð við daglegt líf og félagslegan stuðning.

Leitað er að einstaklingum sem búa yfir hæfni í mannlegum samskiptum, eru ábyrgir og traustir, sýna frumkvæði í starfi og geta unnið sjálfstætt. Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri. Laun eru samkvæmt kjarasamningum FOSS. Starfið hentar jafnt körlum sem konum.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Petrína Fr. Sigurðardóttir, Ráðgjafi félagsþjónustu fatlaðra í síma 487-8125 eða á petrina@felagsmal.is.