Kjötiðnaðarmenn SS fengu rós í hnappagatið síðastliðinn föstudag þegar þeir unnu Bratwurst grillpylsukeppni ÍSAM og AVO.

Keppnin var liðakeppni þar sem öllum kjötvinnslum á landinu var boðin þátttaka og fólst í að framleiða bestu Bratwurst- eða grillpylsuna þar sem efni frá AVO koma við sögu.  Kjötiðnaðarmenn SS undirbjuggu sig af kostgæfni og löguðu Bratwurst pylsur í ýmsum útfærslum.  Hvert fyrirtæki mátti aðeins senda inn eina tegund og eftir stranga þróun og smökkum varð niðurstaðan að þeir sendu inn Bratwurst með sólþurrkuðum tómötum og ólífum.  

Dómarar voru úr röðum matvælafræðinga, kjötiðnaðarmeistara og matreiðslumeistara.  Þeir vissu ekki hvaðan hver vara kom og dæmdu eftir ströngum reglum sem gilda í alþjóðlegum fagkeppnum kjötiðnaðarmanna.  Er skemmst frá því að segja að SS menn sigruðu með glæsibrag.  Í verðlaun fengu þeir veglegan bikar og varan nafnbótina Besta AVO grillpylsa/Bratwurst á Íslandi.

Þessi glæsilegi árangur er enn ein staðfesting þess að í röðum SS eru fagmenn í fremstu röð sem leggja metnað sinn í það sem þeir taka sér fyrir hendur.  Ávallt "Fremstir fyrir bragðið".

Til hamingju starfsmenn SS !!!