- Íbúar
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- English
Tónlistarskóli Rangæinga hélt upp á daginn með tónleikum á Laugalandi, sunnudaginn 3. mars s.l.
Tónleikarnir voru með ,,fjölskylduþema“, þar sem nemendur komu fram með einhverjum úr fjölskyldu sinni, þannig að hinir ýmsu samspilshópar mynduðust, nemendur spiluðu ýmist með syskinum, foreldrum eða jafnvel afa og ömmu.
Útkoman var glæsileg, fjölbreyttir og mjög vel lukkaðir tónleikar og án efa hefur líka undirbúningstíminn heima fyrir verið mjög skemmtilegur líka. Var mál manna að þetta þyrfti að endurtaka einhvern tímann aftur.
Í lok tónleikana spiluðu tveir fyrrverandi píanónemendur skólans, þær Sara Mjöll Magnúsdóttir og Glódís Margrét Guðmundsdóttir, en báðar stunda nú framhaldsnám í tónlistinni.
Eftir velheppnaða tónleika áttu tónleikagestir góða stund yfir kaffibolla og glæsilegu kökuhlaðborði.
Systurnar Elísabet Anna og Íris Beata spila ásamt foreldrum sínum þeim Kristínu og Jarek Dudziak.
Feðgarnir Hákon Kári Einarsson og Einar Viðar Viðarsson spila saman.
Sveinn Rúnar Kristjánsson spilar undir hjá dætrum sínum þeim Ingu Rós og Ídu Rún.