Dagur sauðkindarinnar var haldinn hátíðlega í Skeiðvangi Hvolsvelli s.l. laugardag 17. okt. 

Dagur sauðkindarinnar var haldinn hátíðlega í 8. skipti í Skeiðvangi við Hvoslvöll. Gestir voru um 300 manns og tókst dagurinn einstaklega vel. Það var Félag sauðfjárbænda í Rangárvallasýslu sem stóð að deginum. Félagsbúið Ytri Skógum var útnefnt ræktunarbú Rangárvallasýslu 2014 og gestir völdu svartflekkótt gimbur frá Brekku í þykkvabæ litfegursta lambið. 

Styrktaraðilar sýningarinnar voru Húsasmiðjan Hvolsvelli, Sláturfélag Suðurlands sem gaf gestum kjötsúpu og fjörulæri fyrir þyngsta dilkinn.  Aurasel og Fóðurblandan lánuðu grindur. Verðlaunagripir voru útskornir af Ragnhildi Magnúsdóttur í Gígjarhólskoti og mynd máluð af Gunnhildi Jónsdóttur Berjanesi. Í lokin voru boðin upp 2 lömb sem voru gefin til að standa undir kostnaði. 

Verðlaun voru veitt fyrir 5 vetra ær sem standa efstar í kynbótamati í sýslunni. Fjórar af fimm efstu ánum voru frá Skarði. Efsta ærin var 10-110 frá Skarði með 118.5 stig. Þá voru veitt voru verðlaun fyrir þyngsta dilk úr sýslunni lagðan inn hjá SS nú í haust. Hann var frá Sigrúnu Brynju Haraldsdóttur Svanavatni og vó 29 kg og DU3.

Gimbrar:

1. Nr. 5126 frá Austvaðsholti  með 9.5 fyrir frampart  19 læri og heildarst. 47.5.
2. Nr. 666 frá Teigi með 9.5 fyrir framp.  19 læri og heildarst. 46.5 
3. Nr.  38 Frá Skíðbakka 1 með 9.5 fyrir framp.  19 læri og heildarst. 46.5.

Á sýninguna komu efstu hrútar úr sýningum í hverri sveit milli Þjórsár og Markarfljóts og voru dæmdir upp á nýtt.

 Efstu lambhrútar urðu:

1. Nr. 43 frá Árbæjarhjáleigu með  89.5 heildarstig. F: Bursti  12-912.
2. Nr.  358 frá Saurbæ með  88 heildarstig. F: Babar 14-078.
3. Nr. 11 frá Djúpadal með  88 heildarstig. F: Snævar 12-333.

Veturgamlir hrútar:

1. 14-354 Farsæll frá Hemlu með 38.5 stig BML og 90 heildarstig F: Fannar 10-488 
2. 14-520 Fannar frá Kálfholti með 37.5 stig BML og 90 heildarstig. F: Bellman 13-193 Álfhólum.
3. 14-138 Hnökri frá Vestra Fíflholti með 37.5 BML og 89 heildarstig. F: Bekri 12-911

Á myndinn hér fyrir neðan er Sumarliði Erlendsson sem tók við viðurkenningu fyrir hönd frænda síns Kristins í Árbæjarhjáleigu, fyrir besta lambhrútinn, með honum er Brynjar Gísli Stefánsson í Þjóðólfsshaga.

Vignir Siggeirsson og Lovísa Herborg Ragnarsdóttir  bændur í Hemlu með beta veturgamlahrútinn

Birkir Hreimur Birkisson í Brekku með litfegursta lambið að mati gesta.

Helgi Benediktsson og Símon Helgi Helgason í Austvaðsholti taka við viðurkenningu fyrir bestu lambgimbrina.

Sigurður Sigurjónsson í Ytri-Skógum með viðurkenningu fyrir ræktunarbú sýslunnar


Fleiri myndir frá deginum