Félag sauðfjárbænda í Rangárvallasýslu sá um dag sauðkindarinnar sem var haldinn í 7. sinn.

Á sýninguna komu efstu hrútar úr sýningum í hverri sveit milli Þjórsár og Markarfljóts og voru dæmdir upp á nýtt. 

Efstu lambhrútar urðu:
1. Nr. 78 frá Tjaldhólum með 37,5 stig fyrir BML og 89 heildarstig. F: Stikill Næfurholti .
2. Nr. 118 frá Álfhólum með 37,5 stig fyrir BML og 88 heildarstig. F: Svalur Álfhólum.
3. Nr. 31 frá Tjaldhólum með 37 stig fyrir BML og 88.5 heildarstig. F: Stikill Næfurholti.

Veturgamlir hrútar.
1. 13-334 Álfur frá Djúpadal með 37 stig BML og 87 heildarstig F: Styrkur Álfhólum
2. 13-301 Kristall frá Búð með 36 stig BML og 87 heildarstig. F: Birkir Bjarnastöðum.
3. 13-082 Pistill frá Austvaðsholti með 37 BML og 88 heildarstig. F: Púki Bergstöðum

Gimbrar.
1. Nr. 294 frá Teigi 1 með 9.5 fyrir frampart  19.5 læri.
2. Nr. 59 frá Hemlu með 9.5 fyrir framp.  19.5 læri. 
3. Nr. 120 frá Kaldbak með 9 fyrir framp.  19 læri.

Gestir völdu litfegursta lambið og var valin svartflekkótt gimbur frá Bergi Guðgeirssyni Hellu.

Verðlaun voru veitt fyrir 5 vetra ær sem standa efstar í kynbótamati í sýslunni. Efstu 6 ærnar voru frá Skarði. Efsta ærin var 09-035 frá Skarði með 119.8 stig.

Veitt voru verðlaun fyrir þyngsta dilk úr sýslunni lagðan inn hjá SS nú í haust. Hann var frá Sigurði Sigurðarsyni Þjóðólfshaga og vó 32.7 kg.

Þá var útnefnt ræktunarbú Rangárvallasýslu 2013. Skarð í Landsveit.

Styrktaraðilar sýningarinnar voru KS, SS sem gaf gestum kjötsúpu og Ítalíulæri fyrir þyngsta dilkinn.  Aurasel og Fóðurblandan lánuðu grindur.

Verðlaunagripir voru útskornir af Ragnhildi Magnúsdóttur í Gígjarhólskoti og mynd máluð af Gunnhildi Jónsdóttur Berjanesi.

Maja í Skinnhúfu sýndi ullarvinnslu.

Í lokin voru boðin upp 3 lömb sem voru gefin til að standa undir kostnaði og einnig  einn forystuhrútur. 
Gestir á sýningunni voru um 300.

Meðfylgjandi myndir tók Helga Sigurðardóttir á Torfastöðum