Í dag, mánudaginn 6. febrúar, verður dagur leikskólans haldinn hátíðlegur í leikskólum landsins í tíunda sinn, en þann dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín. Leikskólar landsins hafa á undanförnum árum haldið upp á dag leikskólans með margbreytilegum hætti og þannig stuðlað að jákvæðri umræðu um leikskólastarfið. 


Dagur leikskólans er samstarfsverkefni Félags leikskólakennara, Félags stjórnenda leikskóla, mennta- og menningarmálaráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Heimilis og skóla – landssamtaka foreldra. 
Í tilefni dagsins verður viðurkenningin Orðsporið veitt í fimmta sinn. Orðsporið eru hvatningarverðlaun sem veitt eru þeim sem þykja hafa skarað framúr í því að efla orðspor leikskólastarfs í landinu og hafa unnið ötullega í þágu leikskóla og leikskólabarna. Mun forseti Íslands afhenda viðurkenninguna á leikskólanum Hofi í Reykjavík. 

Látum dag leikskólans verða okkur hvatning til að kynna okkur það mikilvæga starf sem þar fer fram.
Dagur leikskólans 2017 er viðburður á Facebook og með myllumerkið #dagurleikskolans2017.