Fimmtudaginn 4. apríl vinna Veitur áfram að endurnýjun hitaveitulagnar yfir Eystri Rangá en unnið hefur verið að undirbúningi framkvæmdarinnar undanfarna daga.

Frá kl. 18:00 á fimmtudaginn má því búast við takmörkunum á umferð yfir brúnna. Önnur akgreinin verður þó opin og umferð verður stýrt yfir brúnna svo allir ættu að komast leiðar sinnar.  Frá miðnætti og fram á föstudagsmorgun verður áfram viðhöfð umferðarstýring.

Vegna endurnýjunar lagnarinnar verður lokað fyrir heita vatnið hjá viðskiptavinum Rangárveitna sem búa austan við Eystri Rangá, þ.e. á Hvolsvelli og nágrenni, á fimmtudag kl. 16:00 og fram á föstudagsmorgun.

Fólki er bent á að hafa skrúfað fyrir alla heitavatnskrana til að draga úr hættu á slysi eða tjóni þegar vatnið kemst á að nýju. Í kuldatíð er ráðlegt að hafa glugga lokaða og útidyr ekki opnar lengur en þörf krefur til að koma í veg fyrir að það kólni.

Starfsfólk Veitna biðst velvirðingar á óþægindum vegna þessa.