Þann 10. október 1908 tók Hvolsskóli formlega til starfa og fagnar því 110 ára afmæli sínu í dag. 

Þegar skólinn var settur í fyrsta skipti bar hann nafnið Stórólfshvolsbarnaskóli og hafði aðsetur fyrstu árin í þinghúsi sveitarinnar. Árið 1927 var svo ákveðið að byggja nýjan skóla á Stórólfshvoli og þar var skólahald til 1980 þegar skólinn flutti á núverandi stað við Vallarbraut á Hvolsvelli. Hvolsskóli er jarðvangsskóli, handhafi Grænfánans og hefur hlotið hinar ýmsu viðurkenningar. Skólastarf hefur líka vaxið og dafnað frá byrjun skólahalds, nú eru um 230 nemendur í skólanum úr öllu sveitarfélaginu. Skólastjóri Hvolsskóla er Birna Sigurðardóttir.

Nemendur, starfsfólk, kennarar og foreldrar tóku höndum saman í morgun og mynduðu keðju utan um skólann og sungu fyrir hann afmælissönginn.