Rangárþing eystra bendir íbúum og gestum á svæðinu á að fara að öllu með gát næsta sólarhringinn. Núna er byrjað að hvessa en eins og fram hefur komið er búist við ofsaveðri í dag og fram á þriðjudag á landinu öllu með snjókomu, rigningu og byl. Ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir óvissustigi vegna veðurofsans. 

Íþróttasmiðstöðin á Hvolsvelli lokar í dag klukkan 14.00 og fellur allt íþróttastarf niður í dag. 

Hvolsskóli og leikskólinn Örk slíta skólastarfi fyrr í dag eða klukkan 14:00 og Skólaskjól er lokað. Samfellustarf fellur niður í dag. 

Það er mikilvægt að taka viðvaranir alvarlega, huga að öllu lauslegu og einnig að niðurföllum en búist er við hækkandi hitastigi og rigningu. 

Búið er að loka hringveginum við Hvolsvöll og stefnt er að því að loka hringveginum yfir Hellisheiði og um Þrengslin klukkan 16:00. 

Snemma í fyrramálið er áfram spáð hvössu veðri og þess vegna mikilvægt að taka stöðuna áður en lagt er af stað.

Sjá kort yfir lokanir hjá Vegagerðinni: 

Vegagerðin lokanir

Lögreglan á Suðurlandi -Facebook síða:

Lögreglan á Suðurlandi