Viðtalstími menningarfulltrúa í RANGÁRÞINGI EYSTRA verður EKKI mánudaginn 6. febrúar. 

Nýr tími verður miðvikudaginn 8. febrúar 2012 kl. 11 - 13 á skrifstofu sveitarfélagsins að Hlíðarvegi 16.

Einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög á Suðurlandi geta sótt um styrki en skilyrði er að umsækjendur sýni fram á mótframlag. Heimilt er að sækja um styrk til verkefna sem umsækjandi er þegar byrjaður að vinna í.

Menningarráð Suðurlands hefur ákveðið að árið 2012 hafi þau verkefni forgang sem uppfylla eitt eða fleiri eftirtalinna atriða: 

  1. Samstarf milli tveggja eða fleiri aðila, byggðarlaga eða listgreina og uppsetning viðburða á fleiri en einum stað
  2. Verkefni sem efla nýsköpun tengd menningu.
  3. Verkefni sem stuðla beint að fjölgun atvinnutækifæra.
  4. Verkefni sem styðja við menningartengda ferðaþjónustu.
  5. Verkefni sem draga fram staðbundin eða svæðisbundin menningareinkenni eða menningararf.

Menningarráðið mun hvorki veita rekstrar-, stofnkostnaðar- né endurbótastyrki. Ekki verður heldur styrkt skráning á menningarminjum, starfsemi íþróttafélaga, bæjarhátíðir, almennar samkomur, safnaðarstarf og hefðbundið menningarstarf innan skóla.

Umsóknarfrestur er til og með 11. febrúar 2012.

Ætlunin er að tilkynna um úthlutun fyrir páska 2012.

Umsóknum skal skilað til Menningarráðs Suðurlands á þar til gerðum eyðublöðum sem hægt er að nálgast á heimasíðu Menningarráðs www.sunnanmenning.is. Allar nánari upplýsingar veitir Dorothee Lubecki, menningarfulltrúi Suðurlands, í síma 480-8207, 896-7511 eða með tölvupósti menning@sudurland.is. 

Menningarfulltrúi verður til viðtals í öllum sveitarfélögum, sjá nánar á www.sunnanmenning.is 

Umsóknir skal senda, í tölvupósti á menning@sudurland.is. Umsóknareyðublað 2012