Vakin er athygli á að tilkynningar um breytingar á lögheimili þurfa að berast eigi síðar en fimmtudaginn 11. desember svo unnt sé að tryggja að einstaklingar séu rétt skráðir í íbúaskrá miðað við 1. desember þessa árs.  

Sérstök athygli er vakin á því að einstaklingar geta tilkynnt flutning á vef Þjóðskrár Íslands, skra.is. Ef lögheimilisflutningur er tilkynntur rafrænt þá fer tilkynningin sjálfkrafa í beiðnakerfi Þjóðskrár Íslands og er skráður eigi síðar en næsta virka dag. Hátt í 50% lögheimilistilkynninga berast nú rafrænt til skráningar og hefur stofnunin fjarlægt eyðublöð af vefnum til þess að ná enn betri árangri í rafrænum skilum.