Bleiki dagurinn hefur notið mikilla vinsælda undanfarin ár, en bleikur er baráttulitur októbermánaðar. Þennan dag hvetjum við alla landsmenn til að sýna samstöðu, klæðast bleiku og hafa bleikt í fyrirrúmi.


Njótum dagsins saman og vekjum um leið athygli á árvekniátaki Bleiku slaufunnar og baráttunni gegn krabbameini hjá konum.

Bleika slaufan er tákn Krabbameinsfélagsins í baráttunni gegn krabbameini í konum. Árið 2000 var átakinu var hleypt af stokkunum hérlendis með sölu á bleiku slaufunni og hefur það vaxið og dafnað með hverju árinu sem líður.