Betri eða bitrari!  


Ertu í hálfleik eða að nálgast hálfleik?

Komdu á skemmtilegt fræðslukvöld á Hvolsvelli, um næstu skref fyrir konur á miðjum aldri með Árelíu Eydísi.

Haldið mánudaginn 26. janúar kl. 20:00 – 22:00 í Héraðsbókasafninu á Hvolsvelli
Kostnaður: 7.000 kr.



Láttu það eftir þér!

Fjallað verður um seinna kynþroskaskeiðið, áskoranir, markmið, hormóna, ný verkefni, sjálfsmynd, sköpunarkraft og síðast en ekki síst hvort tími sé ekki komin til að sinna þér. Leiðir að sjálfsþekkingu og sjálfsnæringu eru kynntar og ræddar.

Eftir kvöldið ættir þú að:
• Þekkja einkenni “seinna kynþroskaskeiðs.”
• Hafa skýrari sýn á næstu leiki.
• Vera jákvæðari gagnvart seinna hálfleik.
• Hafa komið þér upp jákvæðum fyrirmyndum.
• Sett þér markmið sem vitað er að auka jákvæðni og hamingju.
• Skilja aðgreiningu á markmiðum fyrir líkama, sál og anda.



Tilvalið að byrja árið á því að setja sér markmið um seinni hálfleik. 
Kaffi og te innifalið.

.
Viðtal við Árelíui Eydís á Stöð 2 í Ísland í dag

Viðtal við Árelíu Eydísi hjá Siggu og Lollu á Rás 2

Umsagnir

Takk kærlega fyrir einstaklega skemmtilegt og fræðandi kvöld.
Ég get ekki lýst því hvað það kviknaði á mörgum perum hjá mér. Er líka með eina á fyrra skeiðinu svo það er fjör á mínu heimili eins og þínu.
Má til með að deila með þér að ein samstarfskona mín sem ég hafði sagt frá þessu kvöldi, sagði við mig í morgun : Þú er svo sæl með þig síðan þú fórst til hennar Árelíu ! Já sagði ég, ég skil mig bara svo mikið betur núna.
Ég er klárlega á þessu þriggja ár fortímabili með öllu því skemmtilega sem það bíður uppá.

Anna Guðrún Jónsdóttir

Kærar þakkir alveg frábært kvöld, Árelía.
Ég fór út í kvöldið með þá tilfinningu að það væri alveg frábær tími framundan og að lífið væri í rauninni bara rétt að byrja og að eina hindrunin fyrir því að nýta ekki tækifærin sem bjóðast væru mína eigin hugsanir.
Takk enn og aftur fyrir þetta frábæra námsskeið og ég vona að þetta hafi verið upphafið að einhverju meira. Ég á a.m.k. eftir að skrá mig á fleiri námsskeið hjá þér verði þau í boði.
Gangi þér sem best.
Kær kveðja
Sonja Freydís Ágústsdóttir