Auglýst eftir umsóknum í Menningarsjóð Rangárþings eystra.

Rangárþing eystra auglýsir eftir umsóknum í Menningarsjóð Rangárþings eystra fyrir vorúthlutun 2022 sbr. reglur um úthlutun styrkja úr sjóðnum. Styrkupphæðin er samkvæmt fjárhagsáætlun hvers árs.

Umsækjendur um styrk úr Menningarsjóð Rangárþings eystra geta verið lögráða einstaklingar, félagasamtök, stofnanir eða fyrirtæki sem koma að menningu í sveitarfélaginu. Umsækjendur með lögheimili í Rangárþingi eystra geta einnig sótt um styrk þó verkefnið fari fram utan sveitarfélagsins.

Með umsókninni verður að fylgja eftirtalin gögn:

  • Lýsing á verkefninu með verkáætlun og tímaramma.
  • Kostnaðaráætlun.
  • Tilskilin leyfi fyrir framkvæmdinni, ef við á.
  • Upplýsingar um umsóknaraðila.

Ekki eru veittir ferðastyrkir eða rekstrar-, stofnkostnaðar- eða endurbótastyrkir.

Sveitarstjórn Rangárþings eystra tekur ákvörðun um úthlutun styrkja samkvæmt fyrirliggjandi umsóknum að fengnu áliti menningarnefndar Rangárþings eystra.

Umsóknum á að skila á eyðublaði sem finna má á heimasíðu Rangárþings eystra.

Umsóknarfrestur er til 28. febrúar nk.

Menningarnefnd Rangárþings eystra