Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi eystra

Samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er auglýst eftirfarandi tillaga að breytingu á deiliskipulagi í Rangárþingi eystra.

Lambalækur – Breyting á deiliskipulagi

Deiliskipulagsbreytingin felur í sér að frístundabyggð F-322 á Lambalæk í Fljótshlíð verður breytt í íbúðabyggð með allt að sex íbúðalóðum.

Ofangreinda deiliskipulagsbreytingu er hægt að skoða á heimasíðu Rangárþings eystra, www.hvolsvollur.is og á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa frá 2. september 2020. Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar, og er frestur til að skila inn athugasemdum til 14. október 2020. Athugasemdum skal skila skriflega á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa Rangárþings eystra, Austurvegi 4, 860 Hvolsvelli.

F.h. Rangárþings eystra

Guðmundur Úlfar Gíslason

Skipulags- og byggingarfulltrúi