Samkvæmt 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er auglýst til kynningar eftirfarandi lýsing aðalskipulagsbreytingar í Rangárþingi eystra.

 Útskák – Aðalskipulagsbreyting

Breytingin gerir ráð fyrir stækkun á núverandi frístundabyggð (F-353 Hellishólar) úr 10,0 ha í 13,7 ha, eða um 3,7 ha. Auk þess er um 0,45 ha landskika breytt úr frístundabyggð (F) í landbúnaðarsvæði (L). Norðurhluti hinnar breyttu frístundabyggðar er landspildan Útskák, 5,8 ha úr landi Kirkjulækjarkots.

Ofangreind tillaga að breytingum á aðalskipulagi Rangárþings eystra verður kynnt fyrir almenningi með opnu húsi hjá skipulags- og byggingarfulltrúa, Austurvegi 4, Hvolsvelli, miðvikudaginn 16. janúar 2019, kl. 13:00-15:00. Einnig verður tillagan aðgengileg á heimasíðu Rangárþings eystra, www.hvolsvollur.is

 

F.h. Rangárþings eystra

Guðmundur Úlfar Gíslason

Fulltrúi skipulags- og byggingarmála