Auglýsing um lóðaúthlutanir í Rangárþingi eystra

Rangárþing eystra auglýsir hér með eftirfarandi lóðir á Hvolsvelli, lausar til úthlutunar.

 

Gunnarsgerði 9 undir byggingu einbýlishúss

Hvolstún 21 og 25 undir byggingu einbýlishúsa

Nýbýlavegur 12 og 14 undir byggingu parhúsa

 

Umsóknareyðublað, nánari upplýsingar um lóðirnar og skipulagsskilmála má nálgast á heimasíðu Rangárþings eystra www.hvolsvollur.is og á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa, Austurvegi 4, Hvolsvelli, bygg@hvolsvollur.is

Við úthlutun lóðanna verður farið eftir úthlutunarreglum lóða í Rangárþingi eystra. Umsóknarfrestur er til 31. janúar 2019. Umsóknum skal skilað á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa eða á netfangið bygg@hvolsvollur.is.

 

F.h. Rangárþings eystra

Guðmundur Úlfar Gíslason

Skipulags- og byggingarfulltrúi